Þrír nýir starfsmenn hafa verið ráðnir í stjórnendastöður hjá N1, en það eru þau Hreinn Þorvaldsson, Ragnhildur Leósdóttir og Svavar Kári Grétarsson. Ragnhildur og Hreinn koma inn á orkusvið N1 og Svavar gegnir stöðu deildarstjóra dagvörusviðs félagsins.
Ragnhildur Leósdóttir tók nýlega við starfi sölu- og þjónustustjóra orkusviðs hjá N1 sem heldur m.a. utan um sölu fyrirtækisins á raforku, rafhleðslustöðvum og rekstri þeirra vítt og breitt um land.
Ragnhildur gegndi síðast starfi deildarstjóra söluráðgjafar hjá Símanum og þar áður var hún vörustjóri Sjónvarps Símans. Ragnhildur hefur lokið Executive MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og er viðskiptafræðingur að mennt með áherslu á markaðsfræði frá Hult International Business School í London.
Hreinn Þorvaldsson hefur tekið við starfi rekstrarstjóra, einnig á orkusviði N1, en þangað kom hann frá Festi, þar sem hann starfaði allt frá samruna félaganna árið 2018. Hjá Festi bar hann m.a. ábyrgð á innheimtu fyrir öll félög samstæðunnar auk umsjónar með viðskiptareikningum félaganna og fleiru.
Fyrir þann tíma, eða frá 2016, starfaði Hreinn á fjármálasviði N1. Hreinn er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Svavar Kári Grétarsson var ráðinn í stöðu deildarstjóra dagvörusviðs N1, en hann starfaði áður hjá Ölgerðinni þar sem hann starfaði sem vörumerkjastjóri Collab á innlendum markaði frá 2018 til 2022.
Þegar Ölgerðin hóf formlega útrás með drykkinn á erlenda markaði færði Svavar sig yfir í útflutningsdeildina, þar sem hann gegndi lykilhlutverki í undirbúningi og vexti vörumerkisins erlendis ásamt því að sinna öðrum útflutningsverkefnum. Svavar er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.