Sara Rut Sigurjónsdóttir, Stefán Reykjalín og Tómas Magnús Þórhallsson hafa bæst við eigendahóp BBA//Fjeldco.

Sara Rut Sigurjónsdóttir útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík á árinu 2012, öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2013 og lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2021. Sara hóf störf hjá BBA//Fjeldco árið 2013 og hefur í störfum sínum lagt áherslu á félaga- og fjármálarétt, þ.m.t. verkefni tengd kaupum og sölu fyrirtækja, fjármögnun fyrirtækja og ráðgjöf við fjármálafyrirtæki og aðra eftirlitsskylda aðila.

Stefán Reykjalín útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík á árinu 2010 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2011. Stefán hóf störf hjá BBA//Fjeldco árið 2014 og starfaði áður hjá skilanefnd og slitastjórn Landsbanka Íslands. Stefán hefur í störfum sínum lagt áherslu á almenna lögfræðiráðgjöf til fyrirtækja, þ.m.t. verkefni tengd kaupum og sölu fyrirtækja, verðbréfamarkaðsrétt, ráðgjöf við innlend og erlend fjármálafyrirtæki og verktaka- og útboðsrétt.

Tómas Magnús Þórhallsson útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík á árinu 2011 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2013. Tómas hóf störf hjá BBA//Fjeldco árið 2013 og hefur í störfum sínum lagt áherslu á almenna lögfræðiráðgjöf til fyrirtækja, þ.m.t. verkefni tengd kaupum og sölu fyrirtækja og fasteigna, lögfræðiráðgjöf til fasteignafélaga, stjórnsýslurétt og verktaka- og útboðsrétt.

BBA//Fjeldco er ein stærsta lögmannsstofa landsins á sviði fjármála– og fyrirtækjalögfræði. Á stofunni starfa sérhæfðir lögfræðingar, með lögmannsréttindi á Íslandi, Englandi, Frakklandi og New York. BBA//Fjeldco er með skrifstofur í Reykjavík og London, ásamt starfsemi í Frakklandi.