Sólar ehf. hefur á síðustu mánuðum bætt við sig miklum liðsstyrk en Eydís Perla Martinsdóttir hefur verið ráðin á sölu- og markaðssvið og á rekstrar- og mannauðssvið hafa þau Eyþór Örn Ólafsson og Vilborg Anna Garðarsdóttir verið ráðin til starfa.

Fyrirtækið eru eitt af stærstu ræstingarfyrirtækjum landsins með rúmlega 500 starfsmenn um allt land í almennum þrifum, hreingerningum og sérverkefnum.

Vilborg Anna kom til starfa sem aðalbókari síðastliðið haust. Hún hefur mikla reynslu af fjármálum, innleiðingu nýrra fjárhags- og bókhaldsferla, greiningarvinnu og hefur síðustu 17 ár starfað á því sviði.

Þá var Vilborg framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Bílaleigunni Sixt í tæp 10 ár, fjármálastjóri hjá UN Women og síðast forstöðumaður framlegðar og tekjustýringar hjá Coca-Cola á Íslandi. Vilborg er með meistaragráðu í Alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst.

Eydís Perla er með BSc gráðu í sálfræði frá HÍ og MPM gráðu í verkefnastjórnun frá HR en hún kom í starf söluráðgjafa í lok síðasta árs. Hún hefur víðtæka reynslu úr þjónustu og verkefnastjórnun, meðal annars úr störfum sínum hjá S4S, þar sem hún sinnti fjölbreyttum verkefnum.

Þá hefur hún einnig starfað sem flugliði hjá WOW air og býr yfir mikilli innsýn í mannleg samskipti og teymisvinnu.

„Við erum gríðarlega ánægð að fá þetta unga og öfluga fólk til liðs við okkur“

Eyþór Örn, sem er nýráðinn til Sólar, verður sérfræðingur á rekstrar- og mannauðssviði þar sem helstu verkefni hans eru verðútreikningar og útboðsverkefni. Eyþór hefur starfað frá árinu 2022 á fjármálasviði Bláa Lónsins þar sem hann sinnti fjárhagsbókhaldi samhliða námi.

Hann hefur lokið BSc gráðu í viðskiptafræði frá HÍ og MCF gráðu í fjármálum fyrirtækja frá HR.

„Við erum gríðarlega ánægð að fá þetta unga og öfluga fólk til liðs við okkur og styðja þannig við núverandi þjónustustig og áframhaldandi og vöxt Sólar. Fyrirtækið hefur þróast hratt og tekist á við mikinn vöxt undanfarin ár og mörg verkefni eru framundan í áframhaldandi þróun á þjónustu og uppbyggingu á innviðum fyrirtækisins,“ segir Einar Hannesson framkvæmdstjóri Sólar.