Tinna Jóhannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Skógarbaða ehf. sem er nýr baðstaður í Eyjafirði.

Tinna hefur hefur undanfarin fjögur ár starfað sem forstöðumaður markaðsmála hjá Smáralind og fasteignafélaginu Regin. Þá hefur Tinna m.a. setið í stjórn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka verslunar og þjónustu og Markaðsstofu Kópavogs.

Tinna er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands auk gráðu frá Háskólanum á Bifröst í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti og diplóma í mannauðsstjórnun frá EHÍ.

„Ég hlakka mikið til að flytja norður og takast á við þetta spennandi og jafnframt krefjandi verkefni. Á undanförnum árum hef ég viðað að mér fjölbreyttri reynslu m.a.  í markaðs- og mannauðsmálum sem ég tel að muni nýtast vel í þessu starfi.  Skógarböðin verða einstaklega spennandi áfangastaður sem ég hef óbilandi trú á að verði vel tekið meðal Íslendinga, sem og erlendra ferðamanna," er haft eftir Tinnu í tilkynningu frá Skógarböðunum.

Stefnt er að opnun Skógarbaða snemma árs 2022. Heitt vatn frá Vaðlaheiðargöngum verður nýtt í laugarnar en laugarsvæðið samanstendur af tveimur laugum sem samtals eru um 500 fermetrar og geta tekið á móti 200 gestum í einu. Einnig verða kaldur pottur, þurrsána, tveir barir á svæðinu auk útisvæðis.

Þjónustuhúsnæðið verður um 800 fermetrar að stærð en það hýsir meðal annars búningsklefa, afgreiðslu og veitingasal þar sem hægt verður að eiga notalega stund og njóta kyrrðarinnar við arineld.

Framkvæmdir eru nú í fullum gangi og geta þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með, litið við á Facebook síðu Skógarbaðanna ásamt því að á allra næstu dögum opnar heimasíða þar sem hægt verður meðal annars að versla gjafabréf í böði