Heimkaup hefur ráðið þau Bjarna Þór Logason sem innkaupastjóra og Sæunni Viggósdóttur sem mannauðsstjóra Heimkaupa.
Bjarni Þór hefur starfað á matvælamarkaði í um tvo áratugi og hefur hann undanfarin ár stýrt eigin rekstri. Áður starfaði hann sem rekstrarstjóri hjá heildversluninni Rolf Johansen Co.
Hann var einnig rekstrarstjóri hjá Líflandi og síðar í sama hlutverki hjá Ölgerðinni. Fyrsta stjórnunarstaða Bjarna á matvælamarkaði var sem sölustjóri hjá Hagkaup þar sem hann var í fimm ár.
Bjarni hefur lokið BA-prófi í viðskiptafræði auk þess að hafa lagt stund á nám í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Sæunn tók nýverið við stöðu mannauðsstjóra en starfaði áður á sviði fjármála og mannauðsmála hjá Heimkaupum. Hún starfaði í sextán ár innan íþróttahreyfingarinnar við fjölbreytt störf, meðal annars á sviði mannauðsmála.
Hún hóf störf hjá hreyfingunni sem íþróttafulltrúi og síðar sem yfirþjálfari hjá Ármanni. Hjá Fimleikasambandi Íslands var hún fjármálastjóri og síðar í hlutverki afreksstjóra og hélt hún meðal annars utan um verkefni tengdum landsliðinu í fimleikum.
Sæunn er með B.A. í félagsráðgjöf og M.S. í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að vera með alþjóðleg dómararéttindi í fimleikum.
„Það er mikill styrkur fyrir okkur hjá Heimkaupum að fá Bjarna til liðs við okkur hjá Heimkaupum með þá löngu reynslu sem hann hefur af matvælamarkaði. Að sama skapi erum við ákaflega ánægð með að njóta áfram krafta Sæunnar í nýju og viðameira hlutverki,” segir Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Heimkaupa.