Motus hefur ráðið Margréti Önnu Kristjánsdóttur og Sóleyju Þórisdóttur í stöður vörustjóra og hafa þær þegar hafið störf.

Margrét Anna er með BS-gráðu í viðskiptastjórnun og tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún kemur til Motus frá Controlant, þar sem hún starfaði í viðskiptaþróun, en þar áður starfaði hún við viðskiptagreiningu hjá Marel.

Sóley er með BA gráðu og diplóma í vöruhönnun og kennslufræði frá Listaháskóla Íslands. Hún kemur til Motus frá Controlant, þar sem hún hafði starfað í á þriðja ár, síðast sem rekstrarstjóri vöruþróunarsviðs.

Þar áður hafði Sóley starfað um tíu ára skeið hjá Bioeffect sem hönnunarstjóri og vörustjóri. Sóley situr einnig í fagráði Tækniþróunarsjóðs og hefur gert frá árinu 2021.

„Við erum afar lánsöm að hafa fengið þær Sóleyju og Margréti til liðs við okkur hjá Motus. Til að breyta góðri hugmynd í vöru sem mætir þörfum viðskiptavinarins og hjálpar honum við að koma sínum málum í réttan farveg þarf öfluga vörustjóra eins og Sóleyju og Margréti,“ segir Rúnar Skúli Magnússon, yfirmaður vöruþróunar hjá Motus.