Fanney Rós Þorsteinsdóttir, lögmaður hjá embætti ríkislögmanns, og Þórhallur Haukur Þorvaldsson hæstaréttarlögmaður voru einu umsækjendurnir um embætti ríkislögmanns að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins . Embættið heyrir undir forsætisráðuneytið. Auglýst var eftir nýjum ríkislögmanni undir lok síðasta árs og rann umsóknarfrestur út þann 15. janúar.

Einar Karl Hallvarðsson, fráfarandi ríkislögmaður, var í desember skipaður dómari við Héraðsdóm Suðurlands frá 28. febrúar næstkomandi. Einar Karl hefur starfað hjá embætti ríkislögmanns frá árinu 1994, þar af sem ríkislögmaður frá árinu 2011.

Ríkislögmaður fer með rekstur dómsmála fyrir ríkið og stofnanir þess sem og málflutningi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og EFTA-dómstólnum. Þá geta ráðherrar óskað lögfræðilegs álits ríkislögmanns um einstök málefni.