Una Schram, tónlistarkona og menningarmiðlunarnemi, hefur gengið til liðs við auglýsingastofuna Cirkus og mun starfa þar sem hugmyndasmiður og framleiðslustýra samfélagsmiðla.
Hún hefur starfað við tónlist frá 17 ára aldri og hefur meðal annars komið frá á tónlistarhátíðum á borð við Iceland Airwaves og Innipúkann.
Una er með BA-gráðu í atvinnutónlistarmennsku frá háskólanum BIMM Institute í Lundúnum en leggur nú stund á meistaranám í menningarmiðlun við Háskóla Íslands samhliða nýja starfinu.
Þá hefur hún sinnt markaðssetningu og frumkvöðlastarfi á sínum eigin tónlistarferli og aflað sér víðtækrar reynslu á sviði samfélagsmiðla og fjölmiðla.
„Við höfum unnið töluvert með Unu í afmörkuðum verkefnum og þau hefur hún leyst einstaklega vel. Það voru því gleðitíðindi fyrir Cirkusinn þegar hún samþykkti að vinna enn frekar með okkur í fjölbreyttum verkefnum. Una er ofurfrjór og skapandi einstaklingur sem er unaður að umgangast. Með hennar komu styrkist hópurinn til muna, sem nú þegar er virkilega hæfileikaríkur,“ segir Rósa María Árnadóttir, framkvæmdastjóri Cirkus.