Guðmundur Örn Þórðarson hefur verið ráðinn í nýja stöðu framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku og mun hefja störf 20. september næstkomandi. Guðmundur mun samhliða hætta í stjórn bankans og taka sæti í framkvæmdastjórn, að því er kemur fram í tilkynningu Kviku til Kauphallarinnar í morgun.

Guðmundur Örn Þórðarson hefur verið ráðinn í nýja stöðu framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku og mun hefja störf 20. september næstkomandi. Guðmundur mun samhliða hætta í stjórn bankans og taka sæti í framkvæmdastjórn, að því er kemur fram í tilkynningu Kviku til Kauphallarinnar í morgun.

Guðmundur mun leiða viðskiptatengsl Kviku samstæðunnar auk þess að samræma markaðssókn tekjusviða bankans. Þá mun hann koma að þróun nýrra afurða og þjónustu í samvinnu við önnur svið bankans.

Guðmundur hefur setið í stjórn Kviku frá árinu 2017 og verið varaformaður stjórnar frá árinu 2018.

Frá árinu 2000 til 2003 starfaði Guðmundur á þróunarsviði og í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. og gegndi síðan stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs hjá Straumi fjárfestingarbanka hf. á árunum 2003 til 2007. Guðmundur hefur undanfarin ár starfað við eigin fjárfestingar ásamt því að sinna hinum ýmsu stjórnarstörfum.

Guðmundur útskrifaðist með Cand. Oecon próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1997. Einnig hefur hann lokið prófi í verðbréfamiðlun og eignastýringu í Bretlandi.

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Guðmund til liðs við stjórnendateymi Kviku. Hann hefur áratuga reynslu í fyrirtækjaráðgjöf og fjárfestingum, er mjög vel tengdur í íslensku viðskiptalífi og hefur mikla þekkingu á allri starfsemi Kviku eftir margra ára störf í stjórn bankans og dótturfyrirtækjum hans í Bretlandi,“ segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka.

„Á undanförnum misserum hefur náðst mikill árangur hjá bankanum í að styrkja grunnrekstur hans og ná fram hagræðingu í rekstri, en framundan er enn frekar aukin áhersla á tekjumyndun á öllum sviðum. Styrkur bankans til að sækja fram eykst umtalsvert þegar salan á TM gengur í gegn og ráðning Guðmundar er mikilvægur liður í því að efla viðskiptavinatengsl Kviku og auka umsvif bankans á fjármálamarkaði.“