Vaka Njálsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Ölgerðinni sem vörumerkjastjóri Collab, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Vaka starfaði áður hjá Nova í markaðsdeild og vöruþróun, þar sem hún vann að verkefnum tengdum markaðssetningu, stafrænni þróun og vöruframboði. Þar áður var hún hjá Sony Music í Danmörku, þar sem hún sinnti ráðgjöf við útgáfu og markaðssetningu á tónlist.

Vaka er með BSc gráðu í hagfræði og hefur jafnframt stundað nám í ljósmyndun.

Collab drykkurinn hefur notið mikilla vinsælda frá því að hann fór á markað fyrir sex árum síðan. Síðustu misseri hefur Ölgerðin flutt Collab út á erlenda markaði, m.a. til Danmerkur og Þýskalands.

„Ég er spennt fyrir að takast á við nýtt hlutverk og er þakklát því trausti mér mér er sýnt með því að fela mér þetta verðmæta vörumerki. Ég hef trú á að Collab eigi mikið inni, bæði hér heima og erlendis, vegna sérkenna drykkjarins þegar kemur að sjálfbærni og beinni tengingu við íslenska náttúru og menningu. Ég hlakka til að vinna að enn glæstari framtíð Collab með öflugu teymi hérna hjá Ölgerðinni,“ segir Vaka.

„Innan Ölgerðarinnar er mikil vöruþróun og markaðsstarfið er kröftugt. Að fá Vöku með okkur í lið til að vinna með eitt okkar sterkasta vörumerki er frábært. Hún er öflug viðbót í sterkt teymi vörumerkjastjóra Ölgerðarinnar,“ segir Elísabet Austmann, markaðsstjóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni.