Vallý Helgadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustu og rekstrar hjá Helix og hefur hún þegar hafið störf. Vallý býr yfir 25 ára reynslu við að þjónusta heilbrigðis-og lyfjafyrirtæki.
Hún hóf feril sinn í New York þar sem að hún vann á markaðs-og auglýsingastofum Publicis Health í fimm ár, einni stærstu markaðsstofu heims.
Þegar Vallý flutti aftur heim starfaði hún sem þjónustustjóri hjá Medis, systurfyrirtæki Actavis, og þaðan til Distica þar sem að hún stýrði viðskiptaþjónustu félagsins í 10 ár. Vallý leiddi jafnframt uppbyggingu þjónustusviðs Controlant frá 2018 og tók svo við sameinuðu rekstrarsviði félagsins árið 2022 sem framkvæmdarstjóri þjónustu og rekstrar.
„Ég er þakklát fyrir tækifærið að vera hluti af liðsheild Helix, en hjá félaginu starfar öflugur hópur starfsmanna sem öll leggja sitt af mörkum í þróun og þjónustu heilbrigðistæknilausna á íslenskum markaði. Það eru nægar áskoranir framundan og ég er full tilhlökkunar að takast á við þau verkefni með góðu fólki mér við hlið,” segir Vallý.
Síðustu mánuðina hjá félaginu stjórnaði Vallý verkefna-og kerfisstjóra teymum félagsins ásamt því að taka við stöðu gæðastjóra og atvikastjóra.
Vallý er með MPM frá HR og BSc í Organizational Communication, Learning & Design frá Ithaca College í New York, Bandaríkjunum. Hún er einnig með diplóma gráður í Design Thinking frá MIT og Gæðastjórnun frá HÍ.
„Við erum afar ánægð að fá Vallý til liðs við okkur á þessum mikilvæga vaxtartíma. Hún kemur með víðtæka og dýrmæta reynslu af þjónustustýringu og umbreytingum í tæknifyrirtækjum og mun leiða áfram faglegan og árangursdrifinn rekstur þjónustu Helix,” segir Arna Harðardóttir forstjóri Helix.