Vallý Helgadóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustusviðs hjá ræstingafyrirtækinu Hreint.

Í tilkynningu segir að hlutverk hennar verði að halda utan um rekstur og þróun sviðsins, móta og efla þjónustu Hreint til viðskiptavina og styðja við starfsfólk sem sinnir þjónustunni.

Vallý hefur víðtæka reynslu og þekkingu af rekstri og stjórnun og starfaði síðast sem forstöðumaður gæðadeildar hjá Controlant. Áður gegndi hún stöðum framkvæmdastjóra þjónustusviðs og rekstrarsviðs hjá Controlant og var forstöðumaður verkefna- og upplýsingakerfa.

„Ég er þakklát fyrir traustið að fá að leiða öflugt teymi þjónustusviðs Hreint. Hjá Hreint starfar samheldinn hópur sem ég hlakka til að vinna með í þeim áskorunum og tækifærum sem framundan eru. Fyrirtækið er á spennandi vegferð og saman munum við gera góða þjónustu enn betri,“ segir Vallý.

Hún er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík, diplóma í gæðastjórnun frá Endurmenntun Háskóla Íslands og B.Sc. gráðu í samskiptastjórnun frá Ithaca College í New York.

„Við teljum að ráðning Vallýjar til að leiða þjónustusvið fyrirtækisins sé mjög mikilvægt skref stækkunaráformum félagsins til næstu framtíðar. Nýlegur flutningur okkar í nýtt og mun stærra húsnæði til viðbótar við ráðningar Vallýar eru allt skref í þessari vegferð félagsins,“ segir Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri Hreint.