Viðar Erlingsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Marel Software Solutions. Viðar mun bera ábyrgð á framtíðarsýn og stefnu hugbúnaðarlausna Marel á heimsvísu.
„Við innleiðingu nýs skipulags sem kynnt var á dögunum, verður Marel Software Solutions eitt sjö tekjusviða Marel. Þannig verður skerpt á heildrænni yfirsýn og ábyrgð samhliða því að við höldum áfram að efla stafrænt framboð til viðskiptavina okkar,“ segir í fréttatilkynningu.
Viðar snýr aftur til Marels eftir tveggja ára starf hjá Össuri, þar sem hann leiddi svið upplýsingatækni og stafrænna lausna. Viðar hóf fyrst störf hjá Marel árið 2000 sem verkfræðingur í rannsóknum og þróun. Hann hefur gegnt fjölbreyttum hlutverkum innan fyrirtækisins allt þar til hann lét af störfum árið 2020, þá sem framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar.
Viðar er sagður hafa leikið lykilhutverk í þróun Sensor X tækni Marel. „Sensor X umbylti öryggi og gæðum matvæla og margir framsýnustu matvælaframleiðendur heims nýta lausnina til að greina bein og aðra aðskotahluti í matvælum.“
Viðar er með M.Sc. gráðu í verkfræði frá DTU í Danmörku og B.Sc. gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands.
„Ég fagna því að fá Viðar aftur til starfa hjá Marel. Viðar hefur sýnt framúrskarandi leiðtogahæfileika í fyrri störfum hjá félaginu og undanfarin ár hefur hann dýpkað þekkingu sína á sviði hugbúnaðarlausna hjá Össuri. Ég er sannfærður um að Viðar muni leiða Software Solutions hjá Marel til árangurs með farsælum hætti. Stöðug þróun og markaðssetning stafrænna lausna er lykildrifkraftur metnaðarfullrar framtíðarsýnar og vaxtarmarkmiða Marel,“ segir Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Marels.
Hjalti Þórarinsson, sem undanfarin 5 ár hefur leitt Marel Software Solutions, verður Marel áfram til ráðgjafar á næstu misserum. „Við þökkum Hjalta fyrir hans verðmæta framlag við að leiða vegferð hugbúnaðarlausna hjá Marel.“