Víkingur Grímsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju en hann hefur starfað hjá Öskju frá árinu 2017.

Hann gegndi síðast starfi forstöðumanns viðskiptatengsla og hefur, að sögn fyrirtækisins, átt sæti í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2022.

„Það er frábært að sjá unga starfsmenn vaxa innan félagsins, Víkingur hefur sannarlega gert það en hann byrjaði sem sölumaður Mercedes-Benz fyrir sjö árum síðan. Askja er með fjögur öflug vörumerki og alla þjónustu í kringum þau þannig að stýring markaðsmála er umfangsmikið og spennandi verkefni sem við erum heppin að fá Víking til að leysa með okkur,“ segir Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju.

Víkingur er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands sem og BA-gráðu í lögfræði frá sama skóla.

„Það er mikill heiður að fá að stýra markaðsmálum Öskju og leiða þetta sterka markaðsteymi sem byggt hefur verið upp á síðustu misserum. Sjálfur hef ég alltaf verið mikið í kringum bíla og þekki bílabransann vel,“ segir Víkingur.