Fyrir rúmu ári síðantók ráðgjafafyrirtækið Elements by BBA//Fjeldco til starfa en fyrirtækið heldur utan um verkefni BBA//Fjeldco á sviði endurnýjanlegra orkuauðlinda og veitir ráðgjöf um rannsóknir og vinnslu, aðallega þegar kemur að jarðvarma.
Meðal nýlegra verkefna Elements er lagafrumvarp um nýtingu endurnýjanlegra orkuauðlinda í Kómorum (e. Comoros Islands) undan ströndum Austur-Afríku, ásamt reglugerðum um rannsóknir og nýtingu jarðvarma, vindorku og sólarorku. Frumvarpið var samþykkt en verkefnið var unnið í samvinnu við þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna.
Þá hefur starfsfólk Elements samið löggjöf um rannsóknir og vinnslu jarðvarma í ríkinu Djibútí í Austur-Afríku, sem bíður samþykkis löggjafarþingsins. Einnig hefur Elements komið að endurskoðun á löggjöf og reglugerðum fyrir þróun og nýtingu jarðvarma í fjölmörgum löndum á á undanförnum árum og má þar nefna lönd á borð við Búlgaríu, El Salvador, Hondúras, Indónesíu, Kasakstan og Kólumbíu.
Að auki hafa lögmenn Elements tekið að sér annars konar og fjölbreyttari verkefni sem snúa að endurnýjanlegum orkugjöfum. Má þar meðal annars nefna þróunarverkefni á Tenerife á Spáni, sem og í Kína og Eþíópíu.
Ný umfangsmikil samanburðarrannsókn
Á undanförnum árum hefur starfsfólk Elements átt frumkvæði að og stýrt samanburðarrannsóknum í samstarfi við virtar erlendar lögmannsstofur þar sem löggjöf ríkja um rannsóknir og nýtingu jarðvarma er skilgreind og borin saman.
Á undanförnum árum hafa upplýsingar um löggjöf 17 landa á sviði jarðvarma verið aðgengilegar og í vikunni birtist ný samanburðarrannsókn undir nafninu Elements Guide.
Rannsóknin er með nýjum þátttakendum og umfangsmeiri svörum en áður, en gagnagrunnur Elements tekur nú einnig með almennum hætti á helstu grunnstoðum löggjafar þegar kemur að endurnýjanlegum orkugjöfum með sérstaka áherslu á jarðvarma.
Markmiðið er að fjölga þeim löndum sem rannsóknin tekur til og stefnt er að því að birta upplýsingar um jarðvarmalöggjöf 30-40 ríkja á heimasíðum BBA//Fjeldco og Elements.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.