Elements by BBA//Fjeldco heldur utan um verkefni BBA//Fjeldco á sviði endurnýjanlegra orkuauðlinda og veitir ráðgjöf um rannsóknir og vinnslu, aðallega þegar kemur að jarðvarma. Á undanförnum árum hefur starfsfólk Elements verið ríkisstjórnum og ríkisstofnunum í yfir 15 löndum innan handar við þróun löggjafar um nýtingu jarðvarma og komið að verkefnaþróun og ráðgjöf í á þriðja tug landa
Hvað framhaldið varðar er áfram horft til Evrópu þar sem mörg lönd eru rík af auðlindum en þurfa aðstoð við löggjöf. Framkvæmdastjórn ESB hefur kallað eftir því að aðildarríkin móti sér stefnu og geri aðgerðaráætlun þegar kemur að nýtingu jarðvarma.

© Aðsend mynd (AÐSEND)
„Mörg lönd, og jafnvel Bandaríkin, eru að leita eftir aðstoð til að bæta úr lagarammanum en það hefur orðið ákveðin vakning í mörgum löndum að það sé mikilvægt atriði til að byggja upp góðan jarðhitabransa,“ segir Antoine Lochet, forstöðumaður skrifstofu Elements í Frakklandi.
Einna helst hefur verið rætt um að minnka losun við raforkuframleiðslu en mörg lönd hugi nú einnig að losun sem stafar af húshitun.
„Það eru líka lönd sem hafa ekki skoðað jarðhita fyrir raforkuframleiðslu en eru byrjuð að skoða jarðhita fyrir húshitun og það sem við köllum beina nýtingu og þá er þörf á góðum lagaramma. Það eru því frekari tækifæri fyrir okkur og líka fyrir verkfræðinga sem eru að vinna á þessu sviði,“ segir Antoine enn fremur og tekur Baldvin Björn Haraldsson, stjórnarformaður Elements undir.
„Það er í rauninni mjög áhugavert og gaman að sjá þegar ríkisstjórnir bæði ríkja í Bandaríkjunum og landa hingað og þangað um heiminn eru byrjuð að leita lögfræðiþekkingar til Íslands á þessu sviði og það verður að öllum líkindum talsvert mikil aukning á því á næstunni,“ segir Baldvin Björn.
„Ég held að það sé óhætt að segja að eftir mikla vinnu séum við komin í einstaka stöðu á heimsvísu til að veita ráðgjöf á þessu sviði.“
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.