Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram með mest fylgi allra flokka í Reykjavíkurborg en samkvæmt könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptablaðið í maímánuði er fylgi flokksins 31,3%, samanborið við 33,9% fylgi í mars. Samfylkingin sækir aftur á móti í sig veðrið og mælist fylgi flokksins nú 26%.

Þegar rýnt er í tölurnar má sjá hrókeringar þegar horft er til aldurshópa. Þegar horft er til yngsta aldurshópsins sést að Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin, Sósíalistaflokkurinn og Viðreisn eru með mest fylgi. Þegar kemur að elsta aldurshópnum, einstaklinga 70 ára eða eldri eru Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin með höfuð og herðar yfir aðra flokka.

Nokkrar breytingar urðu á milli kannanna en meðal einstaklinga 70 ára og eldri tapar Sjálfstæðisflokkurinn 11,6% fylgi á meðan Samfylkingin bætir við sig 13,1% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn tapar þá 6,2% fylgi meðal einstaklinga 30-39 ára en Samfylkingin bætir við sig 11,7% fylgi.

Sósíalistaflokkurinn tapar einnig fylgi í nær öllum aldursflokkum, mest um 11,3% meðal einstaklinga 30-39 ára en einnig um 4,4% í hópnum 60-69 ára, og 3,7% meðal 70 ára og eldri. Framsókn tapar sömuleiðis fylgi, mest um 5,4% meðal einstaklinga 18-29 ára en Viðreisn bætir við sig 9,2% fylgi í þeim aldurshóp. Á móti missir Viðreisn 5,2% fylgi meðal 40-49 ára.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.