Landsframleiðsla dróst saman um 0,7% að raunvirði á síðasta ári samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofunnar. Til samanburðar sýndu fyrri tölur Hagstofunnar fram á hagvöxt upp á 0,5% í fyrra.
Samhliða birtingu útgáfu þjóðhagsreikninga í morgun birti Hagstofan heildarendurskoðun á tímaröðum allt frá árinu 1995.
Í hagsjá Landsbankans segir að það sem einkum dró niður landsframleiðslu á síðasta ári hafi verið leiðrétting á birgðabreytingum, en í ljós kom skekkja sem hafði veruleg áhrif til lækkunar á landsframleiðslu á seinni helmingi ársins.

„Endurskoðun Hagstofunnar tekur nú aftur með í reikninginn þjónustuviðskipti á milli landa með hugverkaréttindi. Þessar færslur voru áður teknar út vegna efasemda um raunveruleg viðskipti, en eru nú færðar aftur inn og hafa töluverð áhrif til aukins hagvaxtar síðustu ár, sérstaklega frá 2019,“ segir í hagsjánni.