Alcoa Fjarðaál, sem rekur álverksmiðju í Reyðarfirði, hagnaðist um 53,9 milljónir dala á síðasta ári, sem nemur 7,4 milljörðum króna.
Til samanburðar nam hagnaður álversins 36,1 milljón dala á árinu 2023, sem nemur tæplega 5 milljörðum króna.
Eigið fé í árslok 2024 nam 1.124 milljónum dala, eða um 155 milljörðum króna. Meðalfjöldi starfsmanna árið 2024 var 581 samanborið við 568 árið áður, en heildarlaunakostnaður nam 68,4 milljónum dala, um 9,4 milljörðum króna. Þar af nam kostnaður vegna launa 55,3 milljónum dala, um 7,6 milljörðum króna, og námu þ.a.l. meðallaun starfsfólks Alcoa um 1,1 milljón króna á mánuði, án þess að tekið sé tillit til lífeyris og annarra launatengdra gjalda.
Félagið er eitt af stærstu fyrirtækjum á Íslandi, en velta álversins nam 916 milljónum dala á árinu, sem nemur 126 milljörðum króna, samanborið við 877 milljónir dala árið á undan.
Aukna veltu má að mestu leyti rekja til hækkunar á verði á LME og svæðisbundnu álagi á síðari hluta ársins, auk áframhaldandi mikillar eftirspurnar eftir blönduðum álframleiðsluvörum og stöngum í Evrópu, að því er kemur fram í skýrslu stjórnar. Framleiðslugeta álversins er 351 þúsund tonn af áli á ári.
Í skýrslu stjórnar segir að eftir ágætis byrjun á árinu 2025 hafi LME-verðið lækkað verulega vegna óvissu á mörkuðum sem rekja megi til tolla í Bandaríkjunum. Rekstrarafkoman sé mjög háð þróun LME-verðs og álags.
Gert sé ráð fyrir vaxandi eftirspurn eftir áli og sérstaklega með lágt kolefnisspor, en álið frá Alcoa Fjarðaáli sé með því lægsta sem þekkist í álframleiðslu í heiminum.
Fernando Costa er forstjóri Alcoa Fjarðaáls.