Velta Perroy ehf., umboðsaðila Nespresso á Íslandi, jókst um 90 milljónir króna árið 2021 samanborið við 2020 og nam 1.328 milljónum króna. Perroy opnaði sína fyrstu Nespresso verslun í Kringlunni í lok nóvember 2017 en í maí 2019 var önnur verslun opnuð í Smáralind. Að auki rekur félagið netverslun.

EBITDA félagsins var 187 milljón sem er 26 milljóna aukning frá árinu áður. Félagið hagnaðist um 148 milljónir króna á árinu, sem er 23% meira en árið áður þegar hagnaðurinn nam 120 milljónum. Eignir í árslok voru 421 milljónir og skuldir, nær allt skammtímaskuldir, 160 milljónir. Eigið fé félagsins nam 252 milljónum í árslok og jókst um 50 milljónir á milli ára

Einn hluthafi er í félaginu í árslok 2021 samanborið við tvo í upphafi árs. Þannig er félagið að fullu í eigu Adira ehf., félags í eigu Jónasar Hagan Guðmundssonar og Edwards Schmidt, en framkvæmdastjóri er Ívar Sigurjónsson. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 130 milljónir króna á árinu 2022 vegna ársins 2021.

Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.