Nærri 10 milljarðar dala, eða sem nemur um 1.384 milljörðum íslenskra króna, hafa flætt inn í bandaríska verðbréfasjóði sem fjárfesta með beinum hætti í rafmyntinni Bitcoin síðan Donald Trump var kjörinn forseti Bandaríkjanna.

Ýmsir fjárfestar hafa sankað að sér Bitcoin frá kjöri Trump þar sem hann hefur ekki farið í grafgötur með stuðning sinn við rafmyntaiðnaðinn. Hefur hann m.a. lofað að losa um höft í kringum raf­myntir sam­hliða því að hann vill að hluti af gjald­eyris­forða ríkisins verði í Bitcoin.

Tugir sjóða frá útgefendum, þar á meðal BlackRock og Fidelity Investments, hafa dregið til sín um 9,9 milljarða dala af nettóinnflæði á tímabilinu eftir kjördag 5. nóvember sl.

Gengi Bitcoin rauf í fyrsta sinn 100 þúsund dala múrinn í síðustu viku en þegar þetta er skrifað er gengið um 99 þúsund dalir.