Michael O‘Leary, forstjóri Ryanair, hefur tryggt sér að kaupauka í formi kaupréttar að andvirði 111 milljónir evra, eða sem nemur 16 milljörðum króna. Þetta er einn stærsti kaupauki í sögu evrópsks viðskiptalífs, að því er segir í frétt Financial Times.

Hlutabréfaverð Ryanair stóð í 23,74 evrum á hlut við lokun markaða í gær og hefur því verið yfir 21 evru í 28 daga í röð. Samkvæmt kaupréttarsamningi O‘Leary frá árinu 2019 getur hann innleyst umrædda kauprétti ef hlutabréfaverð Ryanair helst yfir 21 evru í 28 daga í röð eða ef flugfélagið skilar 2,2 milljörðum evra eftir skatta á ársgrundvelli.

Í umfjöllun FT segir að hinn 64 ára gamli O‘Leary þurfi að starfa áfram hjá Ryanair út júlí 2028 til að innleysa kaupréttinn.

O‘Leary varði kaupréttarsamninginn fyrr í mánuðinum eftir að írska flugfélagið greindi frá því að hagnaður félagsins hefði dregist saman milli ára.

„Ég tel okkur vera að skila framúrskarandi verðmætasköpun fyrir hluthafa Ryanair á tímum þar sem knattspyrnumenn og -þjálfarar í hæsta gæðaflokki fá greitt 20-25 milljónir evra [2,8-3,6 milljarða króna] á ári.“