Fasteignafélagið Kaldalón hagnaðist um 1,9 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins, en til samanburðar nam hagnaður sama tímabils árið 2023 tæplega 1,7 milljörðum króna. Leigutekjur námu 2,1 milljarði á fyrri hluta árs og jukust um 48% frá sama tímabili í fyrra.

Arðsemi eigin fjár var 17,3% á ársgrundvelli en var 17,2% fyrir ári síðan. Rekstrarhagnaðarhlutfall var 79% á fyrri hluta árs, samanborið við 80% á sama tímabili í fyrra. Handbært fé nam 3,5 milljörðum á lokadegi júnímánaðar en var 1,8 milljarðar sama dag árið 2023. Matsbreyting á tímabilinu nam 2,8 milljörðum, samanborið við 2 milljarða á fyrri hluta ársins 2023.

Heildareignir Kaldalóns námu 66,9 milljörðum í lok tímabilsins, vaxtaberandi skuldir 33,3 milljörðum og eigið fé 25,2 milljörðum.

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns:

„Að teknu tilliti til núverandi starfsumhverfis er afkoma og árangur félagsins á tímabilinu að mínu mati góður.

Kaldalón hefur frá upphafi lagt áherslu á arðsemi í viðskiptum í samræmi við fjárfestingarstefnu félagsins. Þess vegna er ánægjulegt er að sjá vöxtin í félaginu og jákvæð áhrif þess vaxtar á rekstrarniðurstöðu. Tekjuvöxtur á tímabilinu var 48% samanborið við sama tímabil í fyrra en verðlag hækkaði um 7% á sama tíma. Hafa ber í huga að Kaldalón fjárfesti fyrir tæpa 14 milljarða króna árið 2023 og eru margar þeirra eigna að koma inn í rekstur og verða tekjuberandi á árinu 2024.

Kaldalón er mjög vel í stakk búið til frekari vaxtar. Handbært fé og óádregnar lánalínur standa í 5,2 milljörðum króna í lok fyrri árshelmings. Þá er veðsetningarhlutfall Kaldalóns undir langtímamarkmiði félagsins um fjármagnsskipan. Við höfum jafnframt byggt upp innviði félagsins með þeim hætti að við getum hæglega stýrt umtalsvert stærra fasteignasafni. Á fyrri árshelmingi keypti Kaldalón 3.500 m2 af nýju atvinnuhúsnæði sem þegar hafa verið gerðir langtímaleigusamningar um. Það er stefna okkar að vaxa frekar, en við höfum ekki fundið frekari verkefni á tímabilinu sem stóðust okkar arðsemiskröfu og fórum því þá leið að hefja endurkaup á eigin hlutum.

Félagið fylgdi eftir grunnlýsingu félagsins vegna útgáfuramma markaðsfjármögnunar á tímabilinu og gaf út skuldabréfaflokk. Gefin var út umgjörð um græna fjármögnun í ágúst, og er ráðgert að gefa út grænt skuldabréf á næstu misserum. Í dag er um 11% af eignasafni félagsins með alþjóðlega umhverfisvottun og væntingar eru um að það aukist í 16% á næstu misserum. Við höfum trú á að markaðsfjármögnun muni til lengri tíma lækka fjármagnskostnað félagsins og sjáum strax merki þessi á markaði. Í dag eru tveir þriðju hluti af vaxtaberandi skuldum Kaldalóns uppgreiðanlegar.

Þróunarverkefni eru á áætlun. Nýjar eignir að Borgarhellu verða afhentar á seinni helmingi ársins, viðbótum að Grjóthálsi er lokið og ráðgert að uppbygging að Lambhagavegi verið lokið á fyrri hluta ársins 2025.“