Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) og Íslensk verðbréf hafa lokið máli sem varðar rekstur sérhæfða sjóðsins TFII slhf. með sátt sem felur í sér greiðslu sektar að fjárhæð 20 milljónir króna til ríkissjóðs, samkvæmt tilkynningu á vef Seðlabankans.
ÍV sjóðir, sem var dótturfélag Íslenskra verðbréfa, gegndi hlutverki rekstraraðila TFII frá 18. desember 2020 til 5. mars 2023. Brotin áttu sér því stað áður en félagið varð hluti af samstæðu Skaga.
Greiðsla sáttar er á forræði seljanda Íslenskra verðbréfa sem samkvæmt kaupsamningi heldur Skaga og Íslenskum Verðbréfum skaðlausum vegna þessa, að því er kemur fram í tilkynningu Skaga. Björg Capital ehf. var stærsti hluthafi Íslenskra verðbréfa fyrir söluna með 67,6% hlut.
Athugun FME laut að starfsháttum ÍV-sjóða í tengslum við rekstur TFII. Eftirlitið taldi ÍV sjóði hafa með háttsemi sinni brotið á mikilvægum ákvæðum laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
„Málsaðili braut gegn lagaskyldum sem á honum hvíldu þegar hann vanrækti að endurskoða eigin stefnu um meðferð hagsmunaárekstra, sinnti ekki skyldum sínum til að greina hagsmunaárekstra, greip ekki til ráðstafana vegna hagsmunaárekstra sem upp komu í rekstrinum og hélt ekki skrá yfir tilvik þar sem hagsmunaárekstrar mynduðust,“ segir í sáttinni.
ÍV sjóðir útvistuðu eignastýringu TFII samkvæmt eignastýringarsamningi TFII og ÍV sjóða að hluta til Íslenskra verðbréfa, sem gegndi á þeim tíma hlutverki vörsluaðila sjóðsins, án skriflegs útvistunarsamnings.
„Málsaðila skorti stefnu um útvistun til skýjaþjónustuaðila, hann sinnti ekki skilum á gátlista vegna skýjaþjónustu og útvistunarstefna málsaðila þarfnaðist endurskoðunar. Stefna ÍV sjóða um nýtingu atkvæðisréttar þarfnaðist uppfærslu með tilliti til þeirra laga- og reglugerðabreytinga sem höfðu átt sér stað frá gildistökudegi stefnunnar, og málsaðili bar ekki undir Fjárfestinga- og hagsmunaráð TFII fjárfestingu dótturfélags TFII, sem var skilyrði fyrir fjárfestingum sjóðsins.“
Eigi ekki við starfsemi Íslenskra verðbréfa í dag
Íslensk verðbréf hf. taka fram að þær athugasemdir sem eru grundvöllur sáttar við FME voru vegna starfshátta sem stundaðir voru áður en félagið var hluti af samstæðu Skaga. Skagi keypti ÍV sjóði árið 2024 sem sameinast í kjölfarið SIV eignastýringu undir merkjum Íslenskra verðbréfa hf. nú í apríl 2025.
„Þeir starfshættir sem fjármálaeftirlitið gerði athugasemdir við ásamt úrbótakröfum eiga ekki við í dag. Starfsemi Íslenskra verðbréfa hf. felst í dag eingöngu í eigna- og sjóðastýringu ólíkt því sem var þegar um var að ræða verðbréfafyrirtæki með miðlun og fyrirtækjaráðgjöf, vörslu auk eignastýringar,“ segir í tilkynningu Íslenskra verðbréfa í tilefni af sáttinni.
„Starfsfólk sameinaðs félags hefur áratuga reynslu af eigna- og sjóðastýringu og hefur ætíð stýrt eignasöfnum og sjóðum af fyllstu fagmennsku og ávallt haft, og mun hafa, hagsmuni viðskiptavina sinna að leiðarljósi í störfum sínum.“
Færðu sjóðinn til Landsbréfa
Eigendur TFII, sem eru að uppistöðu lífeyrissjóðir, gengu til samninga við Landsbréf, sjóðastýringafélag Landsbankans, um rekstur sjóðsins um mitt ár 2023 eftir að hluthafar hans höfðu gert ýmsar alvarlegar athugasemdir við rekstur hans hjá ÍV sjóðum, líkt og Innherji greindi frá á sínum tíma.
Eignir TFII voru bókfærðar á 5,4 milljarða króna í árslok 2024. Sjóðurinn átti í lok síðasta árs 88,3% hlut í Hreinsitækni, 4,6% hlut í Genís og 60% hlut í Hringrás. Félagið var einnig meðal stærstu hluthafa Coripharma en seldi nánast allan 7% hlut sinn í samheitalyfjafyrirtækinu til eigin hluthafa, einkum lífeyrissjóða, í lok árs 2023.