Til marks um aukið vægi verðtryggðra lána á húsnæðislánamarkaði hafa útistandandi verðtryggð lán heimilanna aukist um 21,5% að nafnvirði milli aprílmánaða 2024 og 2025 meðan óverðtryggð lán hafa dregist saman um 13,7% að nafnvirði. Í mánaðarskýrslu HMS kemur þó fram að hægt hafi á uppgreiðslum óverðtryggðra lána samhliða lægra nafnvaxtastigi. Þar að auki hafi nú þegar fjöldi heimila endurfjármagnað óverðtryggð fastvaxtalán sín.
„Þær uppgreiðslur hófust haustið 2023 þegar fyrstu óverðtryggðu fastvaxtalánin sem tekin höfðu verið í lágvaxtaumhverfinu árið 2020 komu til vaxtaendurskoðunar. Á þeim tíma voru í heildina 706 milljarðar króna eða 28% af heildarútlánum heimila á föstum óverðtryggðum vöxtum,“ segir í skýrslu HMS.
Í heildina hafi 45 milljarðar losnað á haustmánuðum 2023, 256 milljarðar króna af slíkum lánum í fyrra og á fyrri hluta þessa árs hafi 183 milljarðar króna af óverðtryggðum lánum á föstum vöxtum komið til vaxtaendurskoðunar. Sé miðað við haustið 2023 eigi því innan við þriðjungur heildarútlána á föstum óverðtryggðum vöxtum eftir að koma til vaxtaendurskoðunar.
Því sé útlit fyrir að minni breytingar verði í samsetningu lána heimilanna næstu mánuði samanborið við síðustu mánuði og misseri en 94 milljarðar af slíkum lánum komi til endurskoðunar á seinni hluta þessa árs og alls 106 milljarðar á næsta ári.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.