Tankurinn ehf., eig­andi TGI Fri­da­ys veitingastaðarins í Smára­lind og Grill­hússins, var úr­skurðaður gjaldþrota í vor en sam­kvæmt lög­birtinga­blaði lýstu kröfu­hafar um 227,5 milljónum króna í þrota­búið.

Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur. Eig­endur Tanksins voru Jóhannes Birgir Skúla­son og Helgi Magnús Her­manns­son. Veitingastöðunum hefur ekki verið lokað og því má ætla að rekstrinum hafi verið haldið áfram undir öðru félagi.

Líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá tók Tankurinn við eignar­haldi Grill­hússins ehf. um miðjan apríl í fyrra og urðu Jóhannes og Helgi nýir stjórn­endur veitingastaða Grill­hússins á Sprengi­sandi og Lauga­vegi 96.

Grill­húsið hefur að auki rekið veitingastað í Borgar­nesi um nokkurra ára skeið en hópur fjár­festa undir for­ystu Ör­vars Bessa­sonar frestaði kaupum á Grill­húsinu í Borgar­nesi í fyrra.

Í septem­ber var greint frá því að eig­endur TGI Fri­day´s hefðu samið við veitinga­manninn Elís Árna­son um kaup á veitingastaðnum Sport & Grill og kaffi­húsinu Ades­so í Smára­lind og hafa tekið við rekstri staðanna.

Þar var einnig greint frá því að til stæði að fjölga Fri­day‘s-stöðunum á Ís­landi og breyta Grill­húsinu við Lauga­veg í Fri­day‘s-veitingastað líkt og nú hefur gerst.

Sam­kvæmt síðasta árs­reikningi Tanksins ehf. tapaði félagið 14,2 milljónum króna árið 2023. Félagið tapaði 18,1 milljón árið áður

Hand­bært fé félagsins í árs­lok 2023 var 25,4 milljónir króna og voru eignir bók­færðar á 76 milljónir. Eigið fé félagsins var neikvætt um 62,1 milljón og námu skuldir 138 milljónum.

Grill­húsið ehf. var áður í jafnri eigu Þórðar Bachmann og Haf­steins Hasler og velti 760 milljónum króna árið 2022, sem var 50% aukning frá árinu 2021 þegar veltan nam 505 milljónum.

Tap­rekstur var hjá Grill­húsinu á árunum 2019-2022, en þar á undan hafði félagið skilað hagnaði sjö ár í röð.

Eignir félagsins voru bók­færðar á 115 milljónir í árs­lok 2022. Skuldir námu 150 milljónum, þar af voru 47 milljónir í langtíma­skuldir, og eigið fé var neikvætt um 35 milljónir.