Coripharma Holding tapaði 1,5 milljörðum króna í fyrra samanborið við 2 milljarða tap árið áður.
Félagið lauk 12,1 milljón evra (1,8 milljarða króna) hlutafjáraukningu í júní sl. Coripharma setti fimm lyf sem það þróaði á markað í fyrra og skilaði góðum sölutölum, að því er kemur fram í skýrslu stjórnar.
Tekjur af vörusölu og leyfistekjum námu 22,4 milljónum evra, sem nemur 3,3 milljörðum króna, þar af 9,8 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi. Stærstu hluthafar eru CP Invest, félag í eigu Iðunnar framtakssjóðs og lífeyrissjóða, Eignarhaldsfélagið Hof, Snæból, og BKP Invest.
Jónína Guðmundsdóttir er forstjóri Coripharma.
Coripharma Holding
2023 |
---|
2.559 |
9.576 |
3.443 |
2.032 |