Hagnaður Egilssonar ehf., sem rekur verslunina A4, nam 142 milljónum króna í fyrra, samanborið við 176 milljóna hagnað árið áður.

Tekjur námu 3,5 milljörðum og jukust um tæp 6% milli ára. Eiginfjárhlutfall félagsins var 36,9% um áramótin, samanborið við 31,3% árið áður.

Stjórn móðurfélagsins, A4 ehf., leggur til 50 milljóna arðgreiðslu vegna ársins 2023. Egill Þór Sigurðsson er forstjóri og stærsti eigandi A4 í gegnum félagið Andvara.