Betri samgöngur fjárfestu í samgönguinnviðum í fyrra fyrir samtals 3,5 milljarða króna í fyrra, að því er kemur fram í tilkynningu félagsins.
Af fjárfestingu síðasta árs fóru 1,3 milljarðar í undirbúningi Borgarlínunnar, 1,1 milljarður í stofnvegum, 600 milljónir í hjóla-, og göngustígum og undirgöngum og 500 milljónir í öryggis- og flæðisbætandi aðgerðum og umferðarljósastýringu.
Fram kemur að frá gildistöku Samgöngusáttmálans hefur félagið fjárfest í samgönguinnviðum fyrir alls 14,5 milljarða.
Þar af hefur verið fjárfest fyrir 3,8 milljarða í undirbúningi Borgarlínunnar, 6,5 milljarða í stofnvegum, 2,7 milljarðar í hjóla-, og göngustígum og undirgöngum og 1,6 milljarðar og öryggis- og flæðisbætandi aðgerðum.
Eignir komnar í 25 milljarða
Rekstrargjöld Betri samgangna voru 226 milljónir árið 2023 og fjármunatekjur 329 milljónir þannig að rekstrarniðurstaða var jákvæð um 103 milljónir, samanborið við neikvæða niðurstöðu um 37 milljónir árið áður.
Eignir voru 25,2 milljarðar í árslok, samanborið við 21,6 milljarða í lok árs 2022. Hlutafé var óbreytt, 15 milljarðar, og skuldir voru 10,2 milljarðar, samanborið við 6,6 milljarða árið áður. Handbært fé um áramótin var 3,1 milljarður, samanborið við 2,5 milljarða á sama tíma árið áður.
Ragnhildur nýr stjórnarformaður
Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrum ráðuneytisstjóri í innviðaráðuneytinu, er nýr stjórnarformaður Betri samgangna. Hún tekur við af Árna M. Mathiesen fyrrum fjármálaráðherra sem verið hefur stjórnarformaður frá stofnun fyrirtækisins 2020.
Að öðru leyti er stjórn óbreytt en hana skipa auk Ragnhildar, Ólöf Örvarsdóttir varaformaður, Ásthildur Helgadóttir, Eyjólfur Árni Rafnsson, Guðrún Ögmundsdóttir og Páll Björgvin Guðmundsson. Þetta er meðal niðurstaðna aðalfundar Betri samgangna sem haldinn var í gær.
