Mosfellsbakarí hagnaðist um tæplega 41 milljón króna eftir skatta í fyrra, samanborið við 29 milljóna króna hagnað árið 2023.

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 25 milljónir króna í ár, að því er kemur fram í ársreikningi félagsins.

Mosfellsbakarí rekur tvö bakarí, annars vegar að Háholti 13-15 í Mosfellsbæ og á Háaleitisbraut 58-60 í Reykjavík.

Velta félagsins jókst um 0,8% milli ára og nam 749 milljónum króna í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBIT) fór úr 40 milljónum í 52 milljónir milli ára.

Eignir Mosfellsbakarís námu 154 milljónum í árslok 2024 og eigið fé var um 72 milljónir.

Hafliði Ragnarsson er framkvæmdastjóri Mosfellsbakarís en hann á 60% hlut í bakaríinu á móti 40% hlut systur sinnar Lindu Bjarkar Ragnarsdóttur.

Lykiltölur / Mosfellsbakarí

2024 2023
Rekstrartekjur 749 743
Rekstrarhagnaður 52 40
Hagnaður e. skatta 41 29
Eignir 154 138
Eigið fé 72 56
Ársverk 37 36
- í milljónum króna