Samkvæmt svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, voru 42% allra fanga á Íslandi 2024 með erlent ríkisfang.
Um er að ræða töluverða fjölgun þar sem árið 2019 voru erlendir ríkisborgarar 21% og 14% árið 2014.
Samkvæmt ráðuneytinu hófu 218 erlendir ríkisborgarar afplánun eða gæsluvarðhald í fangelsi árið 2024.
Árið 2024 afplánaði að meðaltali 31 erlendur ríkisborgari fangelsisrefsingu á hverjum degi. Hinn 15. mars 2025 voru 32 erlendir ríkisborgarar í afplánun í fangelsinu.
Hlutfall erlendra fanga hefur farið vaxandi á undanförnum árum og vekur umræðu um brotahegðun, málshraða og dvalarskilyrði útlendinga sem gerast brotlegir við lög hér á landi.
Bergþór spurði einnig: Hversu margir erlendir ríkisborgarar sátu í gæsluvarðhaldi árið 2024 annars vegar og 15. mars 2025 hins vegar?
„Árið 2024 sátu að meðaltali 28 erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi á hverjum degi. Samtals hófu 208 erlendir ríkisborgarar gæsluvarðhald það ár og af þeim voru 63 í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga. Hinn 15. mars 2025 sátu 37 erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi í fangelsi, þar af voru fjórir í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga,” segir í svari ráðuneytisins.
Yfir allt árið 2024 voru 208 erlendir ríkisborgarar úrskurðaðir í gæsluvarðhald samanborið við 182 erlenda ríkisborgara árið áður.
Á sama tíma fjölgaði úrskurðum einnig vegna íslenskra ríkisborgara, en árið 2024 voru 90 íslenskir ríkisborgarar úrskurðaðir í gæsluvarðhald samanborið við 59 árið 2023.
Alls voru 81.277 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí síðastliðinn og fjölgaði þeim um 731 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,9 prósent samkvæmtÞjóðskrá.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 685 einstaklinga eða um 0,2 prósent. Íslenskir ríkisborgara eru alls 326.185.