Stóru viðskiptabankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, högnuðust samtals um tæplega 67 milljarða króna á síðasta ári. Samanlagður hagnaður bankanna þriggja dróst saman um rúmlega fimmtung, eða rúmlega 14 milljarða króna, frá árinu 2021. Það ár reyndist bönkunum þó sérlega gjöfult og hefur samanlagður hagnaður bankanna aðeins einu sinni verið hærri frá hruni en það var árið 2015, er samanlagður hagnaður þeirra nam tæplega 107 milljörðum króna. Þess ber þó að geta að það ár stóð Arion banki undir nærri helmingi hagnaðarins. Munaði þar mest um að í janúar 2016 seldi dótturfélag bankans allan hlut sinn í Bakkavör Group, sem varð til þess að eignarhlutinn var endurmetinn í lok árs 2015 og virði hans jókst um nærri 21 milljarð króna. Sú fjárhæð var svo færð til bókar á ársreikningi 2015 sem hlutdeild í hagnaði hlutadeildarfélaga.
Þegar horft er aftur til ársins 2009 er árið 2022 það fimmta besta hvað samanlagðan hagnað varðar. Samanlagður hagnaður þeirra á tímabilinu er að meðaltali rúmlega 58 milljarðar króna en nærri 62 milljarðar að miðgildi.
Frá árinu 2009 hafa stóru viðskiptabankarnir þrír alls skilað tæplega 818 milljarða króna hagnaði. Landsbankinn hefur skilað mestum samanlögðum hagnaði á tímabilinu, eða rúmlega 309 milljörðum króna. Arion banki hefur skilað rétt rúmlega 256 milljarða króna hagnaði og Íslandsbanki tæplega 253 milljörðum.
Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í Viðskiptablaðinu.