Paragon Fund hagnaðist um 713 milljónir króna í fyrra, samanborið við 359 milljóna hagnað árið áður.

Gangvirðisbreyting verðbréfa  var jákvæð um 838 milljónir en sjóðurinn á meðal annars hlutabréf í Novo Nordisk, Ryanair Holdings og Alphabet, móðurfélagi Google.

Orca Capital Partners er rekstraraðili sjóðsins og er Björn Hjaltested Gunnarsson er framkvæmdastjóri. Tryggvi Páll Hreinsson er sjóðstjóri ásamt Birni.

Lykiltölur / Paragon Fund slhf.

2024 2023
Gangvirðisbr. verðbréfa 838 431
Eigið fé 6.992 4.167
Eignir 7.073 4.219
Hagnaður 713 359
- í milljónum króna

Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.