Írska ríkið seldi 5% hlut í bankanum Allied Irish Banks (AIB) til fagfjárfesta fyrir 397 milljónir evra, eða rúmlega 58 milljarða króna, eftir lokun markaða í gær. Írska ríkið fer nú með 57% hlut í bankanum. Salan fór fram með tilboðsfyrirkomulagi líkt og stuðst var við í útboði Bankaýslu ríkisins á 22,5% hlut í Íslandsbanka í mars síðastliðnum.

Söluverðið sem írska ríkið fékk fyrir 5% hlut í AIB í útboðinu í gær nam 2,95 evrum á hlut. Markaðsgengi bankans stóð í 3,2 evrum við lokun markaða á mánudaginn, áður en útboðið hófst. Verðfrávik í útboðinu miðað við síðasta dagslokagengi fyrir útboðið, eða það sem oft er kallað „útboðsafsláttur“, var því yfir 7,8%. Til samanburðar var frávikið 4,1% í tilviki Íslandsbankasölunnar.

Írska ríkið eignaðist bankann eftir að hafa komið honum til bjargar í fjármálahruninu árið 2008. Ríkið seldi 25% hlut í frumútboði árið 2017 og fékk þá 4,4 evrur á hlut.

Í lok júní á þessu ári seldi ríkið einnig 5% hlut í bankanum með tilboðsfyrirkomulagi fyrir 305 milljónir evra. Í því útboði var verðfrávikið 6,5%.