Danska dagblaðið Berlinske birti í kvöld skoðunarkönnun sem var unnin í samstarfi við grænlenska blaðið Sermitsiaq. Þar voru Grænlendingar spurðir: „Viltu að Grænland segi sig úr ríkjasambandinu við Danmörk og verði í staðinn hluti af Bandaríkjunum?“
Um 85% aðspurðra Grænlendinga segja nei við spurningunni. Einungis 6% vilja ganga inn í Bandaríkin og 9% skila svara ekki.
Viltu að Grænland segi sig úr ríkjasambandinu við Danmörk og verði í staðinn hluti af Bandaríkjunum?
„Miðað við það sem Donald Trump hefur áður sagt, þá höfum við hér mjög skýra staðfestingu á því að raunveruleikinn er annar,“ segir Kasper Møller Hansen, prófessor í stjórnmálafræði við Kaupmannahafnarháskóla og sérfræðingur í skoðanakönnunum í samtali við Berlinske.
Í könnunni kemur fram að 45% Grænlendinga líti á áhuga Trumps sem ógn, en aðeins 8% myndu vilja fá bandarískan ríkisborgararétt ef þeir gætu valið á milli þess og danskra ríkisborgararéttar.
Segja niðurstöðuna gleðilega fyrir Danmörku
Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur, segir niðurstöðuna jákvæða.
„Það eru sterk söguleg bönd milli Grænlands og Danmerkur. Mér finnst gleðilegt að svo margir Grænlendingar lýsi því yfir að þau bönd séu ekki eitthvað sem maður slítur bara svo auðveldlega,“ segir hann í samtali við blaðið.
Utanríkisráðherra Danmerkur, Lars Løkke Rasmussen, tekur í sama streng í samtali við Berlinske:
„Framtíð Grænlands er ákvörðun Grænlendinga. Þessi könnun sýnir mjög skýrt hvað stór meirihluti í Grænlandi vill ekki – að verða hluti af Bandaríkjunum. Það passar við það sem ég hef heyrt í samtölum við grænlenska kollega og vini,“ segir hann.