Franski lyfjaframleiðandinn Sanofi hefur samþykkt að kaupa bandaríska ónæmisfræðifyrirtækið Blueprint fyrir allt að 9,5 milljarða dali. Um er að ræða þriðju kaup Sanofi á árinu en á fundi með fjárfestum á dögunum ýjaði framkvæmdastjórnin að fleiri yfirtökum á árinu.

Sanofi gekk í byrjun maí frá sölu á ráðandi hlut í Opella, sem sá um heilbrigðisstarfsemi á neytendamarkaði, og ákvað að einblína frekar á nýjungar í lyfjaframleiðslu. Með kaupunum á Blueprint hyggst Sanofi auka við ónæmislyfjaframleiðslu sína en í kaupunum er innifalið lyfið Ayvakit en sölutekjur lyfsins námu 150 milljónum á fyrsta ársfjórðungi og telur Blueprint að sölutekjur á ársgrundvelli gætu numið allt að 2 milljörðum dala.