Fjár­festingar­fé­lagið IREF, í eigu Gunnars Sverris Harðar­sonar og Þórarins Arnars Sæ­vars­sonar, hefur keypt hlut Hannesar Stein­dórs­sonar fast­eigna­sala í fast­eigna­sölunni Lind.

Ekki fengust upp­lýsingar um kaup­verðið en Hannes átti rúmlega 40% hlut í fast­eigna­sölunni. Hannes hefur átt um 51% í fasteignasölunni frá opnun árið 2015 en seldi 10% hlut fyrr á árinu.

Í samtali við Viðskiptablaðið, segir Hannes að hann muni halda áfram að vinna hjá Lind og gera það sem hann elskar, sem er að selja fasteignir.

Gunnar Sverrir og Þórarinn Arnar eru meðal stærstu hlut­hafa fast­eigna­sölunnar RE/Max á Ís­landi. Í sam­tali við Við­skipta­blaðið segir Gunnar að þetta sýni trú þeirra á ís­lenskum fast­eigna­markaði.

Nýjasti ársreikningur Lindar fasteignasölu sem aðgengilegur er hjá Fyrirtækjaskrá nær yfir rekstararárið 2021. Það ár hagnaðist fasteignasalan um 42 milljónir króna, en árið 2020 nam hagnaður 28 milljónum króna. Rekstrartekjur námu 864 milljónum króna og jukust um 190 milljónir frá fyrra ári.

Eignir Lindar námu 143 milljónum króna í lok árs 2021 og eigið fé 81 milljón króna.

Fjár­festingar­fé­lagið IREF hagnaðist um 452 milljónir árið 2022 saman­borið við 1,8 milljarða árið 2021. Eignir fé­lagsins voru bók­færðar á 5,3 milljarða króna í árs­lok 2022 saman­borið við 3,7 milljarða árið áður. Eigið fé var um 4,3 milljarðar.