Aðalskoðun hefur opnað nýja skoðunarstöð við Eyrarveg 51 á Selfossi. Er þetta tíunda skoðunarstöð fyrirtækisins.

,,Við erum að styrkja okkur á Suðurlandi með nýju stöðinni á Selfossi. Hún mun þjóna íbúum Selfoss, Hveragerðis, Hvolsvallar, Hellu, Þorlákshafnar, Eyrabakka og Stokkseyrar og raunar öllu Suðurlandi," segir Ómar Pálmason, forstjóri og eigandi Aðalskoðunar.

Aðalskoðun er einnig með færanlegan skoðunarbíl sem er fullkomin stöð sem er fest ofan á Mercedes-Benz flutningabíl sem flytur hana á milli staða. Ómar segir að færanlega skoðunarstöðin, sem var tekin í notkun árið 2018, hafi verið mjög vinsæl.

„Með nýju færanlegu skoðunarstöðinni höfum við getað þjónustað viðskiptavini enn betur og á stærra svæði en gert hefur verið fram að þessu. Fyrirtækjum hefur verið boðið upp á þann möguleika að stöðin komi á staðinn og skoði bílaflotann, sem er einstaklega hentug þjónusta fyrir fyrirtæki sem hafa yfir stórum bílaflota að ráða. Einnig þau fyrirtæki sem sjá hag sinn í að bjóða starfsmönnum upp á bifreiðaskoðun á vinnutíma. Þetta sparar tíma fyrir fólk og býður upp á mikla hagræðingu fyrir fyrirtæki,“ segir Ómar.