Adobe hefur fallið frá áformuðum 20 milljarða dala kaupum á bandaríska hugbúnaðarfyrirtækinu Figma eftir að félagið taldi ljóst að það væri engin leið fær til að fá samþykki frá eftirlitsaðilum Bretlands og Evrópusambandsins.
Adobe tilkynnti í september 2022 um að félagið hefði náð samkomulagi um kaup á Figma. Hugbúnaður Figma, sem var stofnað árið 2012, gerir forriturum og grafískum hönnuðum kleift að vinna saman og hanna hluti á borð við glærukynningar og notendaviðmót á snjallsímaforritum.
Breska samkeppniseftirlitið og samkeppnisyfirvöld ESB hafa á síðustu mánuðum gert athugasemdir við fyrirhugaðan samruna félaganna vegna mögulegra áhrifa á markaði með vöruhönnun, myndvinnslu og myndskreytingar.
Adobe hafnaði málamiðlunum á borð við að selja ákveðnar rekstrareiningar til að mæta áhyggjum breska samkeppniseftirlitsins.
Adobe og Fima sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í morgun þar sem félögin segjast ósammála niðurstöðum samkeppnisyfirvalda í Bretlandi og ESB en telja að það sé báðum félögum í hag að starfa áfram í sitthvoru lagi. Adobe mun greiða Figma 1 milljarð dala fyrir að falla frá kaupunum, samkvæmt skilmálum samkomulagsins.