Ölgerðin hefur sagt upp Gunnari B. Sigurgeirssyni, aðstoðarforstjóra félagsins. Jafnframt hefur staða aðstoðarforstjóra verið lögð niður. „Breytingarnar taka nú þegar gildi,“ segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Gunnar hefur starfað hjá Ölgerðinni frá árinu 2008 og þar af gegnt stöðu aðstoðarforstjóra frá árinu 2019.

„Gunnar hefur starfað hjá Ölgerðinni síðan 2008 og komið að þróun og uppbyggingu á flestum vörumerkjum Ölgerðarinnar. Ég þakka honum fyrir óeigingjarnt starf í gegnum árin og óska honum velfarnaðar í framtíðinni“, segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, í tilkynningunni.

Ölgerðin birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung fjárhagsárs félagsins. Afkoma félagsins dróst saman milli ára og Ölgerðin færði afkomuspá sína fyrir fjárhagsárið í heild sinni niður.