Sýn hf. birti ársreikning sinn fyrir árið 2024 í gærkvöldi en stjórn félagsins samþykkti reikninginn í gær.
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 21.647 milljónum króna, sem er lítillega lægra en árið 2023 þegar tekjurnar voru 21.746 milljónir króna.
Tekjur af kjarnastarfsemi jukust þó um 4,4%. Auglýsingatekjur hækkuðu um tæplega 10%, þar sem tekjur af sjónvarpsauglýsingum hækkuðu um 40,8%, og tekjur af auglýsingasölu Vísis og í útvarpi jukust um 3,4%.
Þrátt fyrir þetta voru auglýsingatekjur á öllum miðlum undir væntingum á fjórða ársfjórðungi.
Rekstrarkostnaður nam 6.780 milljónum króna á árinu, sem er hækkun um 3,6% frá fyrra ári. Þessi hækkun skýrist aðallega af almennum kjarasamningsbundnum launahækkunum upp á 3,25% og lækkun eignfærðs launakostnaðar um 131 milljón króna vegna minni fjárfestinga og breytinga á eignfærslustefnu félagsins.
Rekstrarhagnaður (EBIT) fyrir virðisrýrnun nam 739 milljónum króna árið 2024, samanborið við 3.544 milljónir króna árið 2023.
Leiðrétt fyrir hagnaði af sölu stofnnetsins á fjórða ársfjórðungi 2023 var EBIT árið 2023 1.108 milljónir króna.
Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild Sýnar leiddi í ljós virðisrýrnun að fjárhæð 1.161 milljón króna. Helsta ástæða virðisrýrnunarinnar er hækkun á vegnum fjármagnskostnaði (WACC) úr 11,8% árið 2023 í 12,8% árið 2024, sem stafar aðallega af hækkun áhættuálags í fjarskipta- og fjölmiðlageiranum.
Einnig hafði áhrif að félagið lækkaði áður útgefnar horfur í rekstri fyrir árið 2025. Þessi virðisrýrnun hefur ekki áhrif á rekstrarhæfi félagsins til lengri tíma, sjóðstreymi eða lánaskilmála.
Tap eftir skatta fyrir virðisrýrnun nam 357 milljónum króna, samanborið við 2.109 milljóna króna hagnað árið 2023.
Leiðrétt fyrir hagnaði af sölu stofnnetsins var tap samstæðunnar 327 milljónir króna. Heildarfjárfestingar á árinu námu 3.937 milljónum króna, þar af voru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 714 milljónir króna, í óefnislegum eignum 1.015 milljónir króna og í sýningarréttum 2.208 milljónir króna.
Handbært fé í árslok 2024 var 264 milljónir króna, samanborið við 624 milljónir króna í lok árs 2023.
„Afkoma ársins 2024 var undir okkar væntingum en mikilvægar og nauðsynlegar breytingar hafa verið gerðar á rekstri samstæðunnar. Við settum okkur metnaðarfull markmið að lækka rekstrarkostnað á ársgrundvelli og náðum við góðum árangri á því sviði. Kjarasamningsbundnar hækkanir og hækkanir birgja höfðu þó á móti neikvæð rekstrarleg áhrif,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar
Þrátt fyrir kjarasamningsbundnar hækkanir og hækkanir birgja, sem höfðu neikvæð rekstrarleg áhrif, hefur félagið náð að auka skilvirkni og samvinnu meðal allra rekstrareininga að sögn Herdísar.
„Skilvirkni og samvinna hefur verið aukin meðal allra rekstrareininga sem gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini enn betur og auka arðsemina á komandi ári.”
Framtíðarhorfur félagsins eru jákvæðar, með áherslu á innri vöxt á síðari hluta ársins 2025, sérstaklega með tilkomu enska boltans.
Sögulega hefur verið mikil fylgni milli vinsæls afþreyingarefnis í sjónvarpi og fjarskiptaþjónustu. Rekstrarspá stjórnenda gerir ráð fyrir að hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) verði á bilinu 800-1.200 milljónir króna á árinu 2025.
Þessi spá tekur ekki tillit til mögulegrar lækkunar kostnaðar við rekstur fjarskiptainnviða í gegnum víðtækara samstarf á vettvangi Sendafélagsins.
Jafnframt er gert ráð fyrir að viðskiptavinum fjölgi umtalsvert á árinu, þar sem þeir kjósa að njóta betri þjónustu og samkeppnishæfra lausna í sjónvarpsáskriftum, farsímaþjónustu og heimatengingum.
„Ég hef fulla trú á að við náum að auka rekstrarhagnað af kjarnastarfsemi undanfarinna ára verulega. Við verðum þung í fjárfestingum á árinu vegna einskiptis kostnaðar við innleiðingu á nýrri stefnu, breyttri ásýnd félagsins og Enski boltinn er að koma heim. Stígandi verður í tekjum og arðsemi eftir því sem líður á árið og gert er ráð fyrir að síðari hluti ársins verði umtalsvert betri en sá fyrri. Enski boltinn, vinsælasta sjónvarpsefni landsins, er á leið aftur til okkar og leiknir verða 380 leikir á komandi leiktíð. Við skynjum mikla eftirvæntingu á meðal okkar viðskiptavina og starfsfólks fyrir komandi tímabili sem hefst þann 16. ágúst næstkomandi. Sögulega hefur afþreyingarefni í sjónvarpi, og þá sérstaklega Enski boltinn, haft mikil áhrif á hvar viðskiptavinir kjósa að kaupa farsímaþjónustu og gagnaflutninga. Við munum bjóða þá velkomna aftur sem og aðra viðskiptavini sem vilja sitja í besta sætinu með okkur og njóta þess að sjá allt vinsælasta íþróttaefni sem í boði er á einum stað.“