Loðnuvinnslan hf. í Fáskrúðsfirði hagnaðist um 659 milljónir króna í fyrra og nam velta sameinaðs félags 18,9 milljörðum króna. Loðnuleysi og slök makrílveiði leiddi m.a. til þess að sjávarafli í tonnum dróst saman um 6,7%, þar sem mestu munar um loðnuleysi og slaka makrílveiði, og drógust heildartekjur fiskvinnslu saman um 28%.
Sjávarafli í tonnum dróst saman um 6,7% þar sem mestu munar um loðnuleysi og slaka makrílveiði og drógust heildartekjur fiskvinnslu drógust saman um 28%. Aukin kolmunni frá erlendum skipum og loðna úr Barentshafi dró aðeins úr högginu.
Í ársskýrslu segir að ákvörðun stjórnvalda um að leggja veiðileyfagjöld á sjávarútvegsfyrirtækin hafi veruleg áhrif á rekstur félagsins en á árinu 2025 sé gert ráð fyrir því að þau hækki um 30% frá fyrra ári. Afkoma útgerðar hafi því undir högg að sækja en áform um frekari hækkun og jafnvel tvöföldun veiðigjalda sé hrein aðför að rekstrinum.
Kaupfélag Fáskrúðsfurðinga fer með 83,23% hlut í Loðnuvinnslunni. Lagt er til að arður að fjárhæð 140 milljónir króna verði greiddur út til hluthafa á árinu.
Á árinu 2024 voru dótturfyrirtæki Loðnuvinnslunar sameinuð félaginu og miða tölur ársins 2024 við sameinað félag en tölur ársins 2023 miðast við samstæðu félagsins.
Lykiltölur / Loðnuvinnslan hf.
2023 | |||||||
16.500 | |||||||
9.246 | |||||||
30.795 | |||||||
1.284 |
Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.