Hægt er að óska eftir úttekt á uppsöfnuðum séreignasparnaði nú í ár líkt og verið hefur síðustu ár, í samræmi við samþykkt Alþingis í desember síðastliðnum. Hámarksúttekt er 9 milljónir króna, að frádreginni þeirri fjárhæð sem rétthafi hefur þegar sótt um og fengið greiddar. Um er að ræða 2.750 þúsund króna hækkun á úttektarfjárhæð frá fyrri heimild.

Úttektin greiðist með mánaðarlegum greiðslum að hámarki 600 þúsund í allt að 15 mánuði að frádreginni staðgreiðslu, samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda (tekjuskattur og útsvar). Sé úttekt lægri en níu milljónir króna styttist útgreiðslutími hlutfallslega.

Fyrir þá einstaklinga sem sækja um 9 milljóna króna úttekt nú og hafa ekki nýtt heimildina áður, nemur mánaðarleg útgreiðsla að frádreginni staðgreiðslu samtals 360 þúsund krónur næstu 15 mánuði, miðað við að staðgreiðsluhlutfall á úttekt sé að jafnaði 40%.