Leiðandi hagvísir Analytica lækkaði áfram í ágúst í framhaldi af lækkun undanfarna mánuði. Í tilkynningu Analytica segir að þróun einstakra undirþátta hafi verið að festa sig í sessi í þá veru að benda til minni vaxtar eða samdráttar.

„Lengd lækkunartímabilsins undanfarið bendir til dökknandi horfa næstu mánuði. Þá benda nýlegar tölur Hagstofu Íslands um landsframleiðslu til þess að merki um minni vöxt eða mögulegan samdrátt sé að ganga eftir.“

Þrír af sex undirliðum hagvísisins lækka frá því í júlí. Lækkun á væntingavísitölu Gallup hefur mest að segja sem og samdráttur vöruinnflutnings að raungildi og minni fjölgun ferðamanna en áður.

Þá er áfram umtalsverð óvissa tengd þróun alþjóðastjórnmála og í efnahagsmálum á alþjóðavettvangi.

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum að sex mánuðum liðnum.

Mynd tekin úr frétt á vef Analytica.