Isavia hefur tilkynnt um niðurstöður útboðs um rekstur veitingastaða. Þrír veitingastaðir munu opna í Leifsstöð síðar á árinu, en þeir koma m.a. í stað tveggja staða Joe & The Juice.

Isavia hefur tilkynnt um niðurstöður útboðs um rekstur veitingastaða. Þrír veitingastaðir munu opna í Leifsstöð síðar á árinu, en þeir koma m.a. í stað tveggja staða Joe & The Juice.

Veitingastaðurinn Bakað verður á tveimur stöðum á flugvellinum. Þar verður boðið upp á brauðmeti og pizzur – hvort tveggja bakað á staðnum – með Ágúst Einþórsson, stofnanda BakaBaka, í fararbroddi. Þá verður boðið upp á djúsa, salöt og kaffi frá Te og Kaffi. HAF studio sér um hönnun staðanna tveggja.

„Við hlökkum mikið til að hefja störf í flugstöðinni. Við munum baka allt á staðnum og ætlum að bjóða upp á fjölbreyttan og ferskan mat á góðum tíma. Við verðum með geggjað kaffi og almenna gleði,“ segir Ágúst Einþórsson bakari hjá BakaBaka.

Þá verður Loksins áfram í Leifsstöð, en nú undir nafinu Loksins Café & Bar. Staðurinn opnar á nýjum og stærri stað. „Vöruúrval verður breiðara en áður og staðurinn lokaðri sem tryggir betri hljóðvist.“

Tveir skiluðu inn tilboðum

Alls sóttu sex aðilar útboðsgögnin þegar opnað var fyrir aðgang að þeim 11. júlí 2022. Fimm aðilar skiluðu inn hæfis- og þátttökuyfirlýsingu og uppfylltu þeir allir hæfniskröfur útboðs og var boðið að skila inn tilboðum og taka þátt í viðræðuferlinu.

„Að fá fimm aðila inn í ferlið sem voru metnir hæfir er sérstaklega ánægjulegt og sýnir að rekstur í flugstöðinni er eftirsóttur,“ segir í tilkynningu Isavia.

Á endanum skiluðu tveir aðilar inn tilboðum og var það Lagardère sem reyndist hlutskarpast.

„Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að fá fremstu bakara landsins og sterku íslensku vörumerkin Te og Kaffi og Brikk inn á flugvöllinn í samstarfi við Lagardère sem eru miklir sérfræðingar í flóknum veitingarekstri á flugvöllum. Keflavíkurflugvöllur er í stöðugri þróun og um leið og farþegum fjölgar verða þarfirnar fjölbreyttari. Eins og við höfum þegar tilkynnt opna Jómfrúin og Elda á vormánuðum og með Loksins Café & Bar og Bakað teljum við okkur vera að mæta mjög vel ólíkum þörfum farþega og gera Íslandi hátt undir höfði,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslana og veitinga hjá Isavia.