Airbnb hefur ákveðið að víkka starfsemi sína út fyrir gistileigu og býður nú notendum að bóka lúxusþjónustu eins og einkaþjálfara, nudd og einkakokka í gegnum smáforrit sitt. Þetta kemur fram á vef BBC.
Þar segir að tilkynningin komi örfáum vikum eftir að fyrirtækið greindi frá samdrætti í bókunum fyrir gistirými vegna ófyrirsjáanlegrar viðskiptastefnu Trump.
Nýja þjónustan verður til að byrja með í boði í 260 borgum en innifalið í þjónustunni verða meðal annars heilsumeðferðir, ljósmyndaþjónusta og förðunarþjónusta. Airbnb segir að ferðamenn hugsi í auknum mæli um ferðina sjálfa, frekar en bara hvar gistingin verði.
Brian Chesky, forstjóri Airbnb, segir að fólk hafi hingað til valið hótel fyrir þjónustu og Airbnb fyrir rými. Nú vilji fyrirtækið bjóða viðskiptavinum sínum það besta úr báðum heimum.
Airbnb var stofnað árið 2008 og hefur hingað til hýst meira en tvo milljarða gesta. Fyrirtækið hefur engu að síður staðið frammi fyrir áskorunum, sérstaklega undanfarin ár, vegna aukinna reglugerða hjá mörgum stórborgum og banns á skammtímaleigu.