Fræðslufyrirtækið Akademias hefur fest kaup á Tækninámi, sem sérhæfir sig í fjarnámi í tækninámi þar á meðal með kennslu á Microsoft hugbúnaði. Tækninám var fyrir kaupin í eigu Sigurjóns Hákonarsonar og Hermanns Jónssonar og mun Hermann taka sér stöðu innan Akademias á næstu misserum en Sigurjón kveður.

Tækninám mun renna inn í Akademias og verða í kjölfarið um 35 rafrænir áfangar í boði í ofanálag við þau námskeið sem Akademias býður nú þegar upp á.

„Með því að fá Tækninám inn til okkar erum við að bæta við þjónustu til okkar viðskiptavina. Þetta þýðir fyrst og fremst að við munum auka verulega framboð og gæði á námsefni fyrir Microsoft lausnir, sem er mikilvæg viðbót við þann risastóra kubbakassa sam fræðslusafnið okkar er orðið en við erum sífellt að bæta í eftir þörfum viðskiptavina,” segir Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias.

„Þetta gerir atvinnurekendum kleift að veita starfsmönnum aðgang að fræðslu meðfram vinnu en einnig að raða saman mismunandi áföngum sem mynda lærdómsferli eða spretti, sem taka á þeim raunverulegum áskorunum innan fyrirtækja og stofnanna. Eins og t.d innleiðingu á nýjum kerfum, koma í veg fyrir streitu og kulnun og hjálpa starfsfólki með verkefnastjórnun, skipulag og markmiðasetningu.“

Akademias er með stærsta safn af rafrænu fræðsluefni á Íslandi sem fyrirtæki og opinberir aðilar geta fengið aðgang að. Áfangarnir sem boðið er upp á eru tæplega 100 talsins, þeim fjölgar um 3 til 4 í hverjum mánuði og nú þegar er hafin vinna við að texta þá svo fólk með annað móðurmál en íslensku geti jafnframt eflt sig á vinnumarkaði.