Akureyrarklíníkin var formlega sett á stofn með undirritun heilbrigðisráðherra, Willums Þórs Þórssonar og forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) í dag.
Í maí 2023 ákvað Willum Þór Þórsson heilbrigðismálaráðherra að fela SAk og HSN að vinna saman að því að koma á fót þekkingar- og ráðgjafarmiðstöð um ME sjúkdóminn. Nefnd á vegum SAk og HSN skilaði áliti síðastliðið haust og síðan hefur verið unnið að uppbyggingu þjónustu við ME sjúklinga og þá sem eru með langvarandi eftirstöðvar COVID-19.
„Með Akureyrarklíníkinni er í fyrsta sinn á landsvísu og jafnvel í heiminum möguleiki á heildstæðari þjónustu á vegum hins opinbera fyrir ME sjúklinga,“ segir í fréttatilkynningu.
Jafnframt segir að um sé að ræða fyrsta samvinnuverkefni sinnar tegundar hér á landi á milli heilsugæslu og sjúkrahúss.
„Akureyrarklíníkin er á marga vegu einstakt verkefni á lands- og jafnvel heimsvísu og við erum mjög stolt af því að taka þátt í þessu samstarfi,“ segir Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk. „Mikil tækifæri gefast með stofnun klíníkurinnar. Með henni getum við betur staðið að skráningu um ME sjúkdóminn og byggt upp gagnagrunn um ME og langvarandi COVID-19, sem gefur vísindafólki okkar ómæld tækifæri til rannsókna og aukinnar þekkingar á sjúkdómnum í þágu ME sjúklinga.“
„Stofnun Akureyrarklíníkurinnar er afskaplega þarft verkefni, en við höfum séð töluverða aukningu þeirra sem hafa greinst með ME sjúkdóminn undanfarin ár, sérstaklega í kjölfar Covid,“ segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN. „Því mun það skipta sköpum að fá tryggingu fyrir fjármagni frá hinu opinbera fyrir starfsemina, sem verður til þess að við getum farið að efla þekkingu okkar á eðli ME og í leiðinni þróað heildstæðari og öflugri þjónustu fyrir ME sjúklinga á landsvísu, sem mikið ákall er um.“