Heildverslunin Reykjavík Warehouse, sem þær Kristín Kristmundsdóttir og Sara Jasmín Sigurðardóttir reka saman, er umboðsaðili K18 á Íslandi en þau ákváðu að flytja merkið inn fyrir um þremur árum, fljótlega eftir að það kom á markað erlendis.
„Það að koma nýju merki inn tekur náttúrulega tíma þegar fólk veit ekki hvað þetta er en við héldum bara í trúna. Við vorum búin að lesa okkur til um þetta, þetta var að gera sig en það tók tíma að sýna fólki að þetta væri að gera það,“ segir Kristín og tekur Sara undir.
„Þetta er mjög nýtt merki, þannig fólk úti í heimi var líka að kynnast þessu. Síðan kemur bara sprengja núna og þetta er úti um allt.“
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði