Vegagerðin furðar sig á því að fjármálaráðuneytið hafði ekkert samráð við stofnunina um að standi til að fela henni það verkefni að á skrá kílómetrastöðu gjaldskyldra ökutækja vegna kílómetragjaldsins.
„Þvert á móti var sá skilningur uppi að ekki stæði til að fela stofnuninni þetta hlutverk. Enga skýringu er að finna í frumvarpinu á því hvers vegna það ætti að vera hlutverk framkvæmdastofnunar samgöngumála að annars álestur akstursmæla,“ segir í umsögn Vegagerðarinnar um frumvarp fjármálaráðherra um kílómetragjald sem lagt verður á alla bíla.
Spyrja hvort um mistök hafi veirð að ræða
Vegagerðin bendir á að ekki hafi verið óskað eftir umsögn frá stofnuninni, þrátt að í frumvarpinu séu breytingar sem varði hana.
„Í ljósi framangreinds vill Vegagerðin velta því upp hvort um mistök hafi verið að ræða við vinnslu frumvarpsins þannig að láðst hafi að afmá nafn stofnunarinnar sem álestraraðila,“ segir Vegagerðin.
„Skýrir það hvers vegna frumvarpið var ekki sent stofnuninni til umsagnar við meðferð málsins hjá efnahags- og viðskiptanefnd. Vegagerðin telur nauðsynlegt að leiðrétta þessa mistök þannig að ekki valdi vandkvæðum við framkvæmd laganna verði frumvarpið samþykkt.“
Afar fjarri almennum verkefnum stofnunarinnar
Í frumvarpinu er kveðið á um að skráning á stöðu akstursmæli skuli framkvæmd hjá faggiltri skoðunarstofu ökutækja eða eftir atvikum öðrum álestraraðila við sérstakan álestur á stöðu ökumælis og ávallt við reglubundna skoðun ökutækis.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að Vegagerðin hafi það hlutverk með höndum ásamt tollayfirvöldum og faggiltum skoðunarstöðvum ökutækja að vera álestraraðili sem skráir stöðu akstursmælis tiltekinna gjaldskyldra ökutækja.
Vegagerðin segir að þjónusta á sviði skattheimtu sem felst í álestri akstursmæla sé samkvæmt þeim lögum sem stofnunin starfar eftir ekki á verkefnasviði sínu.
„Verkefnið er afar fjarri almennum verkefnum stofnunarinnar og á engan hátt gert ráð fyrir þess háttar þjónustu í skipulagi starfsemi hennar.
Mönnun stofnunarinnar og skipulag tekur ekki mið af því að stofnunin annist verkefni sem þetta en ljóst er að þjálfa þarf starfsmenn, aðgengi þarf að viðeigandi tölvukerfum auk þess sem skipuleggja þarf starfsemina þannig að viðvera sé á starfsstöðvum Vegagerðarinnar til þess að þjónusta sem hér um ræðir verði veitt með ásættanlegum hætti.“
Vegagerðin segir að það vilji löggjafans að fela stofnuninni það hlutverk að lögum að vera álestraraðili akstursmæla þá þurfi fjárheimildir hennar að endurspegla það hlutverk.
„Vegagerðin hefur að óbreyttu ekki fjárheimildir til að sinna verkefninu.“